|
|
22.11.2007 15:35:37 / oddny
Kolla er í útlöndum og þá blogga ég fyrir þær 30 hræður sem hingað líta inn á hverjum degi: Ég bý í fjölbýli. Bjó í fjölbýli í nítján ár þegar foreldrar mínir, mér til mikillar ánægju, tóku þá meðvituðu ákvörðun að flytja í raðhús. Þar með þurfti ég ekki að hlusta á hvað nágrannar mínir væru að aðhafast næsta tæpa árið. Þá flutti ég til Seyðis í fjölbýli. Þar þurfti ég nú ekki heldur að hlusta á nágranna mína, en þeir fengu að heyra í mér og mínum ruslalýð. en mér er sama. Nú er ég flutt aftur í fjölbýli sem væri ekki frásögu færandi nema hvað að ég er mikið heima á daginn. Konan fyrir ofan mig er líka heima á daginn. Ég sit og læri, eða horfi á sjónvarpið eða er jafnvel sofandi á daginn. Hún hinsvegar er spilandi á fiðluna sína allan daginn. Jafn mikill aðdáandi og ég er af fiðluleik þá finnst mér þetta vera orðið frekar leiðigjarnt. Ég er þó þakklát fyrir að þessi kona er öruglega sprenglærðu fiðluleikari en ekki einhver krakkaanskoti sem kann ekki baun í bala og slær falska feilnótu í tíma og ótíma (þá helst í ótíma). Svo má heldur ekki gleyma öllum börnunum sem búa í þessum stigagangi. Þau hafa það að góðum sið að standa frammi á gangi og taka frekjuköst. Það er í góðu lagi. Ef ég hinsvegar stæði frammi á gangi á orgaði og orgaði úr frekju því Gretta og Bóbó hefðu borðað síðasta súkkulaðið, á væri það ekki jafn krúttlegt. -oddny
»
30.10.2007 23:59:24 / oddny
Einu sinni skrifaði ég hundrað staðreyndir um mig. Núna ætla ég að skrifa fimmtíu staðreyndir um svefnvenjur minar. Reynið að sofna ekki við lesturinn: - Mér finnst gott að sofa.
- Ég sef með dúnsæng sem amma mín gaf mér.
- Ég vil sofa í kulda.
- Ég get ekki sofið ef mér er heitt.
- Ef mér er kalt á tánum sting ég þeim út fyrir sængina.
- Ég vil helst bara sofa í nærbuxum.
- Ég get ekki sofið í sokkum.
- Mér finnst best að sofa á maganum.
- Ég sef núna með Margréti í rúmi.
- Ég sef oftast með linsurnar í augunum.
- Ég pissa alltaf áður en ég fer að sofa.
- Ég get ekki sofið ef ég þarf að pissa.
- Ég fer allavega einu sinni á klósettið meðan ég sef.
- Hæfilegur svefntími fyrir mér eru 12 tímar.
- Metið mitt er samt 17 tímar samfleytt.
- Mér finnst ekki gaman að fara snemma að sofa.
- Ég vil sofa langt fram á daginn.
- Ég get sofnað í hávaða.
- Ég get sofnað í birtu.
- BibbiBró og HeiðurDögg segja að ég tali uppúr svefni.
- Ég hef aldrei gengið í svefni.
- Ég hef nokkrum sinnum dottið úr rúminu mínu meðan ég svaf.
- Ég svaf ini hjá foreldrum mínum í níu ár.
- Ef ég get ekki sofnað þá byrja ég að lesa bók.
- Ég verð næstum undantekningalaust syfjuð þegar ég les bók.
- Mér finnst gott að sofna útfrá sjónvarpinu.
- Ég slefa stundum í svefni.
- Ég hef sofnað á skemmtistað.
- Ég svaf í viku í tjaldi í sumar.
- Ég hef vaknað við hrotu í sjálfri mér.
- Ég hrýt samt sjaldan.
- Ég hef aldrei fengið kvörtun vegna hrotna.
- Einu sinni hélt frænka mín að ég væri þunglynd því ég svæfi svo mikið.
- Einu sinni dreymdi mig voða skemmtilegan draum um Dylan og Brandon úr Beverly.
- Ég sef með þrjá kodda.
- Samt finnst mér ekkert þægilegt að sofa með kodda.
- Ef ég sef í annara manna rúmi sef ég ekki með kodda.
- Ef ég sef ekki með kodda í margar nætur í röð fæ ég hálsríg.
- Ég svaf oft í tímum í Verzló.
- Ég hef sofið í tíma í Háskólanum.
- Ég hef sofið í ferjuhúsi í Færeyjum.
- Ég hef aldrei sofið á bekk.
- Ég hef reyndar sofnað á varamannabekk.
- Ég svaf einu sinni á svölunum mínum á Seyðisfirði.
- Gerði það líka þegar ég bjó í Hraunbæ88.
- Ég tala oft í símann sofandi án þess að gera mér grein fyrir því.
- Ég sofna ef ég tek bílveikistöflu.
- Ég hef sofnað í bíó.
- Ég get sofnað eftir að hafa fengið mér kaffibolla.
- Ég hef sofnað á fótboltaleik.
Njótiði vel!
»
24.10.2007 02:46:01 / oddny
Fólk er víst eitthvað enn að detta inná þessa síðu og því ætla ég að birta smá hugleiðingu hér svona í tilefni ritstíflu minnar. Ég er í fagi sem heitir heimspeki listarinnar. Sem væri nú ekki frásögu færandi nema hvað að ég ákvað að vera svo mikil menntamanneskja að ég fékk bókin ,,Saga heimspekinnar" lánaða hjá Sonju. Þetta er bók sem við áttum að kaupa okkur í Verzló, en þar sem ég var ekki á þeirri línunni að kaupa mér bækur í Verzló þá keypti ég hana aldrei. Allavega man ég að þegar við vorum að læra þessa bók (ég tók hana bara á bókasafninu til að spara) þá fannst mér hún vera svakalega góð. Svo í dag er ég að glugga í hana til að athuga hvað þessi og hinn heimspekingurinn sagði um hin ýmsu málefnin. Og þá kemst ég að því að þetta er drasl bók sem fer ekkert ofan í hlutina, segir bara frá því helsta. Frá því sem hægt er að finna í efsta linkinum ef maður googlar kallinn! Þessi uppgvötvun var einsog þegar maður gerir sér grein fyrir hversu yfirborðslegar bækur í grunnskóla eru þegar maður fer að læra aftur sama hlut í menntaskóla. Þvi fór ég að pæla afhverju maður lærir ekki hlutina strax alveg, í staðinn fyrir að læra smá í grunnskóla og halda að sú þekking sé fullnægjandi. En svo þegar maður kemur í menntó þá kemst maður að grunnskólakenningarnar eru bara heimskulegar og séu í raun og veru mun dýpri. Hví að vera að læra sama hlutinn aftur, og aftur og aftur? Afhverju ekki bara að læra þetta alveg strax? Hversu sem það lítur þá er ég að gera ritgerð núna um listkerfi nútímans og hvort það eigi við núna. Mig vantar 900 orð og því eru allar ábendingar vel þegnar. Annars spurning um að koma þessu bloggi aftur á skrif? Fá hina tvo kafaranna til að blogga? Allavega hef ég lítið annað að gera þar sem ég er bara hress í skólanum....
»
21.09.2007 18:35:16 / oddny
Þar sem hingað inn detta nokkrar hræður á dag hef ég ákveðið að skrifa nýjustu fréttir af okkur köfurunum: Kolbrún: Er að vinna af sér rassgatið hjá Actavis. Þess á milli stundar hún æfingar grimmt, nema kannski núna því núna er frí. Og strákar, hún er á lausu. Andrea: Andrea ætlar að verða kennari þegar hún verður stór. Hún er að stíga uppúr meiðslum og sýndi leikni sína í fótbolta á æfingu með Fylki um daginn. Andrea er ólofuð. Oddný: Ég er í listfræðinni í HÍ og er að fíla mig í botn. Nema hvað ég þekki engan, jú, eina og hún er rauðhærð. Ég er að vinna í Blómabúðinni annan hvorn miðvikudag svo endilega kíkið í heimsókn. Er að fara að flytja í næsta mánuði frá ma&pa. Og ég er á lausu. Annars er þetta að frétta: - Við enduðum í sjötta sæti í deildinni.
- Ég vil benda á það að stelpunum byrjaði að ganga vel þegar ég byrjaði að mæta á völlinn.
- Ég er klárlega lukkudýr!
- Allavega lukkunarpamfíll.
- Fylkisballið er um þar næstu helgi.
- Andrea ætlar sér í sleik þá.
- Kolla hinsvegar ætlar að mæta með skírlífsbeltið sem pabbi hennar gaf henni í skírnargjöf.
- Ma&pa eru úti Berlín núna.
- Ég fékk ekki að hafa bílinn á meðan.
- Haffi litli er aaaalveg á leið í stækkun.
- Heiða Rún líka.
- Þau fengu nefnileag systkinaafslátt, og ætla að ná DóraBró í hæð.
- MaríaBjörk og Óla ætla víst að stofna sitt eigið lið sem mun keppa í fyrstu deildinnni á næsta ári. Samningar standa yfir núna við OlguFærseth um þjálfun liðsins.
- Andrea er sérstaklega veik fyrir svörtum Pólverjum
-oddny, sem er flutt suður
»
06.07.2007 07:16:01 / oddny
Kolbrún og HeiðaRún leggja land undir fót næstkomandi föstudag
og halda til Seyðis. Ég mun gera mér ferð uppá Hérað til að sækja
skvísurnar, en AndreaStefáns mun svo koma á
laugardagsmorgninum.
Hana þarf ég ekki að sækja þar sem hún mun koma með
gámaflutningabíl um ellefuleytið.
Ekkert nema spenna.
oddny
»
07.06.2007 03:39:52 / oddny
Lesendur síðunnar eru fjölmargir á degi hverjum, og hér kemur
eldheitt slúður til að svala þorstanum:
- AndreaStefánsdóttir hefur sótt um í HÍ á
þroskaþjálfabraut.
- Undirrituð stefnir hinsvegar á Listfræði við sama skóla næsta
haust.
- Enginn veit neitt um Kollu.
- HaffiLitli er hættur að blogga vegna módelstarfa. Næst á
dagskrá hjá honum er gríðarlega stór myndataka tengd brúðkaupi og
segist litli maðurinn vera gríðarspenntur fyrir deginum.
- Annars hef ég ekki hitt kappann í háa herrans tíð og er ekki
frá því að ég sé byrjuð að sakna hans.
- Stelpurnar töpuðu naumt fyrir KR um daginn.
- Næsti leikur er á Akureyri nú á föstdaginn.
- Á þann leik ætlaði ég að kíkja, en daman er að fá heimsókn um
helgina og því verður ekkert úr þeirri Akureyrarferð.
- KolbrúnArnardóttir er víst hætt að haltra og byrjuð að
skríða.
- MaríaBjörk er orðin helsti viðskiptavinur Skalla, en daman
leigir þar ótal myndir með MegRyan.
- HeiðaRún er ekkert nema spennt fyrir fyrirhugaðri
Seyðisfjarðarferð.
- Ég er orðin hel tönuð og er klárlega komin með keppnistan.
- Svo er það bara sumarfrí í næstu viku.
- Ég ætla að nýta fríið mitt og læra að skjóta af
haglabyssu.
- Corky er hvítur með bröndótt skott og eyru.
- Sjómannadagurinn var síðustu helgi. Aldrei áður hef ég tekið
eftir þeim degi.
- Ég fór út að skokka í gær og get ekki hreyft mig í dag vegna
harðsperra.
- Pabbi gamli er hress, og getur ekki beðið eftir að komast á
ellilaun.
- LillaLitla er líka spennt fyrir að bóndinn fari á
eftirlaun.
- Þau eru einmitt að fara að eignast sitt þriðja barnabarn nú á
næstu dögum.
- Má það?
- Foreldrar Kollu eru líka í sömu stöðu.
- Þetta setur klárlega þrýsting á mig og Kollu í barneignum.
- Stroganoff hefur gefið það út að þær ætli að flytjast til
Grænlands og starta þar kvennadeild í knattspyrnu næsta haust.
- KristinnSteingríms ætlar víst að hjálpa þeim, sem og
KiddiTomm.
- Ég mæti kannski í borgina í tvo daga í næstu viku.
- Ætli Kolla komist fyrir í planinu?
Gott slúður, gott slúður.
»
27.05.2007 18:53:44 / oddny
Ef ég er ekki viss hvar ég bý þá lít ég uppí fjall:

En ég bý í þessari blokk, nánar tiltekið í einu íbúðinni þar sem
útiljósið er kveikt:

Og þetta er útsýnið frá svölunum:
Og þetta sé ég þegar ég lít útum svefnherbergisgluggann. Ef vel
er leitað sést rolla á myndinni:
Og þetta er húsgagnið mitt (á hlið því ég nennti ekki að snúa
myndinni við):
Og þarna bý ég með honum Corky mínum:
Og þetta er hin víðfræga Lára:
Og þarna er kaupfélagið,:
Og þetta erum við Kleppsystur:
já svona er lífið á Seyðis, snjór í maí og dimmt... eða bara
flassið ekki alveg að standa sig..
-PrikBoozzom
Reykjavík
»
10.05.2007 03:09:01 / oddny
Þá er það staðfest að stór hluti meistaraflokks
kvenna Fylkis, undir forystu Hækjunnar, mun halda hingað
í fjörðinn fagra Seyðisfjörð. Mun fyrri hluti hópsins lenda á
Egilstöðum föstudaginn þrettánda júlí, en AndreaStefáns mun draga
lestina og lenda á sama stað deginum eftir, þ.e. laugardagurinn
fjórtándi júlí. Mun svo öll hersingin halda heim þann sautjánda
júlí.
Mikill undirbúningur hefur þegar hafist fyrir
þessa ferð, en hópurinn mun þurfa að þreita hinar ýmsu þrautir á
meðan dvölinni stendur. Dagskráin verður þétt skipuð af hinum og
þessu en mun þó flest koma á óvart.
Meðal þess sem skoðað verður er FrúLára og Skaftfell sem og
Kaupfélagið og stórverzlunin Ósk.
Ekki er orðið fullt í ferðina en áhugasömum er
bent á að hafa samband við Kolbrúnu"Hækju"Arnardóttur.
-oddny
»
24.04.2007 08:46:10 / kolla
Yfirlýsing frá
Hækjunni, Kolbrúnu Arnardóttur
Hér með staðfestir undirrituð að hún
áhuga sinn á heimsókn til Seyðisfjarðar helgina 13-15
júlí.
Undirrituð hefur rætt þessi mál við
Míu Litlu, Heiðu Rún Steinsdóttur, og hafa þær sýnt þessu ferðalagi
mikinn áhuga.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
flugið (ath þær nenna ekki að keyra) verður bókað en það verður
gert í samráði við ástkæru systur Hækjunnar.
Undirrituð og Mía Litla vilja koma
því á framfæri að ekki er búið að ræða þessi mál við Drésa Kött,
Andreu Stefánsdóttur, og gæti því vel verið að það muni bætast í
hóp áhugasamra á næstu dögum.
Með kærri kveðju til Austfirðinga
nær og fjær.
Kolbrún "HÆKJAN"
Arnardóttir
»
09.04.2007 21:27:09 / kolla
Já góða kvöldið það er hækjan sem heilsar....
Ég sagði víst í kommenti hér neðar á síðunni að vegna heimalegu
minnar undanfarnadaga og næstu daga ætlaði ég að reyna að henda inn
einhverjum hugleiðingum. En annað kom á daginn. Að liggja svona
heima heilu dagana og umgangast sama fólkið, mína yndislegu
fjölskyldu, ég get ekki sagt að það sé frá miklu að segja.
En allavega... vildi koma á framfæri að mig bráðvantar:
- O.C. þætti...
- O.T.H. þætti...
- og nr 1, 2 og 3.... GREY´S ANATOMY
Þannig að ef það er einhver þarna úti sem hefur áhuga á að
gleðja hjarta frú hækju þá má sá hinn sami gefa sig fram og verður
honum boðið í heimsókn í páskaegg og mjólk.
Hækjan kveður 
HEILRÆÐI DAGSINS: VERIÐ GÓÐ VIÐ FÓLK Í HJÓLASTÓL, ÞVÍ
FINNST EKKI GAMAN AÐ SITJA EINS OG ILLA GERÐUR HLUTUR T.D. INN Í
FRÍHÖFN. (been there, done that)...!!!!!!
»
04.04.2007 21:48:55 / oddny
Ég þoli ekki þegar ég er spurð hver eru áhugamál mín. Lengi vel
hélt ég því fram að ég ætti engin áhugamál, en ég hef komist að því
að ég luma á nokkrum. Og hér með vil ég deila þeim með þér lesandi
góður, og get þá vísað í þessa færslu í framtíðinni:
- Túrkemistan - Hef óbilandi áhuga á þessu
landi, þó sérstaklega meðan Túrkemanbasi var við stjórnvöldin. Nú
er hann hinsvegar dauður og fylgist ég því grant með hvernig
landinu er stjórnað eftir hans daga.
- Sjónvarpsgláp - Það áhugamál sem ég
stunda hvað helst. Get setið marga tímana fyrir framan
sjónvarpskassann í hinu besta yfirlæti.
- Sjónvarpsmarkaðir - Elska að horfa á
sjónvarpsmarkaði. Þurfti lengi vel að fara til útlanda til að
stunda þessa iðju, en tók gleði mína nú fyrr á þessu ári þegar
íslenskur markaður byrjaði á SkjáEinum. Þarf ég oft að halda fast
um kreditkortið mitt þegar ég horfi og sé eitthvað þarfaþing sem
mig langar í.
- Einræðisherrar - Hef alltaf gaman að heyra
fréttir af hvað góðir einræðisherrar eru að gera til að fara illa
með landið sitt í nafni þjóðerniskenndar.
- Símaskrá - Ég get lesið símaskrár einsog
hverja aðra skáldsögur.
- Minningargreinar - Minningargreinar heilla mig
alltaf, þá sérstaklega ef þær eru um gamalt fólk, fólk á mínum
aldri eða um ungabörn.
ATH! listinn er ekki tæmandi og ekki í einhverri sérstakri
röð.
-oddny
»
04.04.2007 11:08:43 / kolla
Hæhæ... mamma og pabbi eru að fara út að borða í kvöld og í
leikhús en þetta er allt í góðu, Baldur brósi, Íris og Axel Örn
koma að passa mig.
Sjáumst,
Kolla
»
31.03.2007 20:41:20 / dresa
Já elsti meðlimur kafaranna er fundinn. Ég var sem sagt bara á
Heiðarborg að passa einhverja krakkaorma eins og mér einni er
lagið. En allavega þá er ég mætt aftur og hressari sem aldrei fyrr.
Ég fór sem sagt í gær á reuonion í Árbæjarskóla og það er eiginlega
bara til eitt orð yfir þessa samkomu- KJÁNALEGHEIT. Stemmningin
þarna inni var mjög sérstök og eiginlega bara kjánaleg.
Stelpurnar(kolla og Oddný) sendu mig eina á pleisið og verð ég að
viðurkenna að þeirra var sárt saknað Já fólk getur sko mikið
breyst og svo lítið breyst á fimm árum að það er eiginlega ekki
fyndið. En allavega þá er ég mjög fegin að þetta er búið, ekkert
reuonion á næstunni.
En annars er það af okkur köfurunum að frétta að Oddný er enn
einhvers staðar úti á landi go stefnir að háskóla í Danmörku(
allavega það síðasta sem ég vissi) í haust. Kolla er að vinna í
actavis en stefnir, að ég held, í verkfræðina í haust. Ég hins
vegar er enn að vinna á Heiðarborg en stefni að fara í Kennó eða
Félagsráðgjöf næsta haust.
En jæja nenni ekki að blogga meira, þetta tekur á. Þannig að ég
segi bara bless
»
21.03.2007 11:04:31 / kolla
Eins og áður hefur komið fram er lýst eftir Andreu
Stefánsdóttur.
Andrea er 20 ára gömul snót úr Árbænum. Síðast sást til hennar á
bekkjum Egilshallar sunnudaginn 18 mars milli kl 19og21. Andrea
er með dökkt hár og var umrætt kvöld með
dökka derhúfu á höfði klædd víðum dökkum buxum,
hettupeysu, hermanna-jakka á tali við Heiðu Kind Baldvins
fyrrverandi storm kantmanni Fylkis.
Talið er að ofpössun barna hafi haft slæm áhrif á dömuna og
biðjum við fólk að forðast hana. Ef þið sjáið til hennar endilega
hringið í undirritaða (Sæstrengurinn slitnaði í gærkveldi svo ekki
er hægt að ná í Oddnýju) og haldið ykkur fjarri. Hver veit
nema daman taki kast og heimti að fá að passa fyrir ykkur. Allt frá
því að Heiða K.B. kvaddi hana umrætt kvöld hefur hún verið ansi
sjokkeruð þar sem að fröken Andy Cat tók víst brjálæðiskast í
bílnum og heimtaði að fá að passa Kjartan Andra. Heiða Lind fékk þó
góða áfallahjálp frá ástmanni sínum og hefur það gott í dag (held
ég)         
Annars er það að frétta af undirritaðri að hún skal halda til
Portúgal eftir ca bát 3 sólahringa og 8 klukkustundir. Ekki slæmt.
Með í för verða leikmenn mfl.kv, kannski kani og
þjálfara/liðstjóratæmi og auðvitað pabbi minn, Örn
Hafsteinsson.
Ef þið þurfið að losa ykkur við evrur, endilega hafið samband

Virðingarfyllst,
Kolbrun
Arnardottir
Secretary
Regulatory Affairs
Department
Actavis
Group
Dalshraun
1 t
+354 535
2346m
+354 866
8098 @
KArnardottir@actavis.com
220 Hafnarfjordur
Icelandf
+354
535 2301w
www.actavis.com
Please note
that this e-mail and its attachments are intended for the named
addressee only and may contain information that is confidential and
privileged. If you have by coincidence or mistake or without
specific authorization received this e-mail and its attachments we
request that you notify us immediately that you have received them
in error, uphold strict confidentiality and neither read, copy, nor
otherwise make use of their content in any way Please note that the
sender of this e-mail and its attachments is solely responsible for
its content if it does not concern the operations of Actavis Group
or its subsidiaries.
»
18.03.2007 22:37:04 / oddny
Lýst er eftir AndreuStefánsdóttur
»
Síður: 1 2 3 ... 17
|
|